Vegagerðin býður hér með út eftirlit og ráðgjöf með framkvæmdaverkinu „Jökuldalsvegur (923), Langagerði – Hákonarstaðir“. Framkvæmdaverkið felur í sér endurbyggingu Jökuldalsvegar á um 4,5 km kafla, frá Langagerði að Hákonarstöðum og er áætlað að framkvæmdinni ljúki að fullu 1. október 2027. Framkvæmdaskýrsla og afhending gagna ráðgjafa um verkið sem heild skal liggja fyrir eigi síðar en 1 mánuði eftir að uppgjöri við verktaka lýkur.
Val bjóðenda í eftirlit og ráðgjöf með framkvæmdaverkinu fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðenda og verðtilboð.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 14, júlí 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. júlí 2026.
Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 31. júlí 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.