Útboðsnúmer 26-106
Jökul­dals­vegur (923), Langa­gerði – Hákonar­stað­ir

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júlí 2026
    • 2Opnun tilboða júlí 2026
    • 3Samningum lokið

1. júlí 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu Jökuldalsvegar á um 4,5 km kafla, frá Langagerði að Hákonarstöðum. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar á öllum vegkaflanum og einnig eru gerðar lagfæringar á plan og hæðarlegu vegarins á köflum.

Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar í vegstæði
500 m3
- Fyllingar 
23.900 m3
- Fláafleygar 
25.600 m3
- Ræsalögn 
715 m
- Styrktarlag
25.600 m3
- Burðarlag
5.400 m3
- Klæðing 
32.100 m2
- Girðingar
2.200 m

Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 1. júlí 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  14. júlí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


14. júlí 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
VBF Mjölnir ehf., Selfossi
489.170.722
144,1
159.751.498
Áætlaður verktakakostnaður
339.374.379
100,0
9.955.155
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum
329.419.224
97,1
0