Útboðsnúmer 26-141
Húsa­vík – Þver­garður – Endur­bygg­ing og leng­ing 2026

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst október 2026
    • 2Opnun tilboða október 2026
    • 3Samningum lokið

13. október 2026Útboðsauglýsing

Hafnir Norðuþings óska eftir tilboðum í verkið.

Helstu magntölur:

  • Brjóta og saga eldri kant, þekju og polla. Rífa tvö masturshús.
  • Jarðvinna, fylling og þjöppun.
  • Steypa 24 akkerissteina.
  • Reka niður 197 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ-20-1 og ganga frá stagbitum og stögum.
  • Steypa um 274 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og fenderum.
  • Byggja um 136 m langan grjótgarð við nýja bryggjukantinn, ásamt upptekt á eldri grjótgarði og endurröðun efnis. Áætlað magn í upptekt er um 3.500 m³ á 140 m löngum kafla. Áætlað magn í nýjan garð er um 5.100 m³ af flokkuðu grjóti og sprengdum kjarna og 5.000 m³ af fyllingarefni undir garð.
  • Keyra landfyllingu bakvið garð í kóta +2,8 m á 4.000 m² svæði og kóta +1,5 m á 1.000 m² svæði.

 

Ekki er heimilt að bryja verkið á árinu 2026, en verkinu skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2027.

 

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 13. október 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. október 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.


27. október 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Haftækni ehf., Tálknafirði
489.723.700
108,5
41.510.684
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum
484.944.267
107,5
36.731.251
Áætlaður verktakakostnaður
451.245.700
100,0
3.032.684
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði
448.213.016
99,3
0