Útboðsnúmer 26-088
Hring­vegur um Hvolsvöll (1), endur­bygg­ing vegar

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júní 2026
    • 2Opnun tilboða júlí 2026
    • 3Samningum lokið

23. júní 2026Útboðsauglýsing

Verkið felst í endurbyggingu vegar (Hringvegur) á um 800 m löngum kafla frá afleggjara að tengivirki Landsnets austur fyrir Dufþaksbraut, í Rangárþingi eystra, gatnamótum við Hvolsveg og Hlíðarveg ásamt göngu- og hjólastíg.

Kaflinn er um 800 m langur, frá afleggjara að tengivirki Landsnets austur fyrir Dufþaksbraut. Einnig skal leggja göngu- og hjólastíga. Slitlag er malbik.

Helstu magntölur eru:

  • Fyllingar               5.000 m³
  • Skeringar            15.000 m³
  • Ofanvatnslagnir  1.200 m
  • Styrktarlag           9.200 m³
  • Burðarlag              1.400 m³
  • Malbik                   2.650 tonn
  • Umferðareyjar     6.000 m2
  • Ljósastaurar              46 stk

Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 23. júní 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  7. júlí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


7. júlí 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
427.000.000
100,0
1.568.824
Þjótandi ehf., Hellu
428.568.824
100,4
0