Útboðsnúmer 26-108
Helgustaða­vegur (954) – Forsteypt brú og aðlög­un á vegkafla

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júlí 2026
    • 2Opnun tilboða júlí 2026
    • 3Samningum lokið

1. júlí 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út endurnýjun á brú og aðlögun á vegi á Helgustaðavegi í Eskifirði/Reyðarfirði (954) yfir Helgustaðaá, um 8 km austan við Eskifjörð. Verkinu er skipt upp í tvo verkhluta þ.e. Ný brú yfir Helgustaðaá og aðlögun á vegi í aðkomu brúar. Núverandi brú verður rifin og bráðabirgðavegur og ræsi lagt fram hjá framkvæmdarsvæði á meðan framkvæmdur stendur. Ný brú (stokkur) er gerð úr forsteyptum einingum og verður sett í sama brúarstæði og eldri brú. Vegur í aðkomu brúar endurbættur á um 220 metra kafla

Helstu magntölur eru:

  • Fyllingarefni úr skeringum 607 m³
  • Fyllingarefni úr námum 558 m³
  • Fláafleygar úr námum 372 m³
  • Styrktarlag 609 m³
  • Burðarlag 85 m³
  • Bitavegrið 208 m
  • Steypumót 272 m2
  • Steypa 91 m3
  • Bendistál 12.7 t

Verkinu skal að fullu lokið 15. desember 2026 með fyrirvara um að leyfismál tefji ekki fyrir verkáætlun verktaka. Unnið er að frágangi leyfismála.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 1. júlí 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  21. júlí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


21. júlí 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
68.364.749
100,0
5.724.709
Dal-Björg ehf., Breiðdalsvík
62.748.146
91,8
108.106
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum
62.640.040
91,6
0