Grundarfjörður – Grjótvörn við Norðurgarð 2026
Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í verkið „Grundarfjörður – Grjótvörn við Norðurgarð 2026“.
Helstu magntölur:
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2026.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með föstudeginum 6. febrúar 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu TendSign fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.