Vegagerðin býður hér með út endurbætur á brú á heimreið á Gilsárteigsvegi (948) í Eiðaþinghá, um 16 km norðan við Egilsstaði. Í verkinu felst útskipting á núverandi stálbitum í brúargólfi, endurnýjun á slitlagi og bríkum í timburgólfi, útskipting á brúarvegriði og styrkingar á þverviðum brúargólfs við vegriðsstólpa, og steypuviðgerðir á landstöplum.
Rif og flutningur brúa | Heild |
Vegrið á brú | 24 m |
Tengivegrið | 44 m |
Steypumót | 15 m2 |
Járnalögn | 300 kg |
Steypa | 4 m3 |
Stálvirki | 4.400 kg |
Stálvirki yfirborðsmeðhöndlun | 62 m2 |
Endurnýjun hluta timburgólfs | 12 m |
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 28 apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.