Útboðsnúmer 25-103
Fljóta­göng (76) og aðliggj­andi vegir, hönn­un og mat á umhverf­isáhrif­um

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst nóvember 2025
    • 2Opnun tilboða desember 2025
    • 3Samningum lokið janúar 2026

Fljótagöng (76) og aðliggjandi vegir, hönnun og mat á umhverfisáhrifum

14. nóvember 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út for- og verkhönnun Fljótaganga, aðliggjandi vega og gerð mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Innifalið í verkefninu er m.a. hönnun jarðganga, vega, tveggja brúa, hringtorgs, eins áningarstaðar, einna undirganga fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur, gerð verklýsingar fyrir útboðsgögn verkframkvæmdar og gerð skýrslu fyrir mat á umhverfisáhrifum. Aðlögun núverandi tenginga og heimreiða að nýjum vegi er hluti af verkinu. Framkvæmdin er matsskyld og felur verkefnið í sér gerð umhverfismats og skýrslu.

Val ráðgjafa fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Verkinu skal að fullu lokið í nóvember 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 14. nóvember 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. desember 2025.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 6. janúar 2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.


16. desember 2025Opnun tilboða

Þriðjudaginn 16. desember sl. var bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.
Þann 23. desember 2025 er bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda. Allir bjóðendur uppfylltu kröfur útboðslýsingar.

BjóðandiTilboð kr.Verðtilboð, stigHæfi, stigSamtals, stig
COWI Ísland, Kópavogur
215.661.500
80
16
96
Norconsult Íslandi ehf.
393.166.113
44
20
64
Efla hf, Reykjavík
484.618.055
36
18
54
Áætlaður verktakakostnaður
272.000.000

28. janúar 2026Samningum lokið

COWI Ísland, Kópavogur
kt. 4305720169