Útboðsnúmer 24-054
Dalvík – Norður­garð­ur, steypt þekja og lagn­ir 2025

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst maí 2025
    • 2Opnun tilboða maí 2025
    • 3Samningum lokið

Dalvík – Norðurgarður, steypt þekja og lagnir 2025

6. maí 2025Útboðsauglýsing

Hafnarstjórn Dalvíkur óskar eftir tilboðum í verkið, “ Dalvík – Norðurgarður, steypt þekja og lagnir 2025 „

Helstu verkþættir og magntölur:
Brjóta og fjarlægja eldra yfirborð, um 700 m²
Leggja ídráttarrör
Leggja kaldavatnslagnir
Setja upp vatnshana og tenglaskápa
Leggja snjóbræðslu
Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu
Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 870 m²
Steypa undirstöðu fyrir ljósamastur

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. desember 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 6. maí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. maí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


20. maí 2025Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Fagurverk ehf., Reykjavík
78.656.500
133,5
8.754.750
Tréverk ehf., Dalvík
69.901.750
118,7
0
Áætlaður verktakakostnaður
58.907.432
100,0
10.994.318