Vegagerðin, kt. 680269‐2899, býður hér með út ræstingarþjónustu fyrir svæðismiðstöð sýna að Borgarbraut 66 í Borgarnesi.
Verkefnið felst í framkvæmd á reglulegum ræstingum í húsnæði Vegagerðarinnar í Borgarnesi.
Stærð alls húsnæðisins sem er á tveimur hæðum er um 453,7 m2.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 4. júní 2026.
Tilboðum skal skilað rafrænt í útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. júlí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Áætlaður verktakakostnaður | 4.800.000 | 100,0 | 3.244.056 |
Sólar ehf, Hafnarfjörður | 1.555.944 | 32,4 | 0 |