Vegagerðin ásamt Veitum ohf. óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun á bráðabirgðatengingu Borgarlínu um Nesbrautarbrú í Reykjavík ásamt breytingum og aðlögun núverandi vegstæðis, gatnamóta og stíga, sem mun ná frá gatnamótum Arnarhlíðar við Hlíðarenda að Snorrabraut við Burknagötu, með tengingu við SV rampa frá Miklubraut.
Verkið felst í megindráttum í for- og verkhönnun á akbraut og akreinum Borgarlínu, aðlögun núverandi vega, stíga og gatnamóta, hönnun undirganga, umferðargreiningum og stýringum ásamt breytingum á lögnum Veitna ohf.
Helstu verkþættir eru:
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 29. október 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. desember 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.