Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu á um 3,9 km kafla á Bíldudalsvegi, frá enda 1. áfanga á Mikladal og niður úr Dúddíarbeygju. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, tvöföld klæðing ásamt niðurlögn ræsa, víra- og bitavegrið og vinnsla efnis í burðar- og styrktarlög.
Fyllingar og fláafleygar | 59.475 m³ |
Styrktarlag | 12.420 m³ |
Burðarlag neðra lag | 4.400 m³ |
Burðarlag efra lag | 2.750 m³ |
Þurrfræsing | 24.060 m2 |
Tvöföld klæðing | 27.620 m2 |
Verkinu skal vera lokið að fullu 1. ágúst 2027
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 27. maí 2026.
Tilboðum er skilað rafrænt í útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. júní 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.