Vegagerðin óskar eftir tilboðum í ný- og endurbyggingu Bárðardalsvegar (842) á um 3,1 km kafla, frá Hringvegi að Öxará.
Helstu magntölur eru:
Fyllingarefni úr námum | 36.000 m3 |
Fláafleygar úr skeringum | 1.000 m3 |
Ræsalögn | 144 m |
Styrktarlag | 23.000 m3 |
Burðarlag | 8.300 m3 |
Malarslitlag | 1.050 m3 |
Klæðing, útlögn | 54.100 m2 |
Vegrið | 480 m |
Frágangur fláa | 22.000 m2 |
Frágangur á námum | 68.000 m2 |
Gröftur | 1.905 m3 |
Bergboltar | 42 stk. |
Framleiðsla forsteyptra eininga | 17 stk., alls 365 tn |
Mótafletir, staðsteypt | 97 m2 |
Steypustyrktarjárn, staðsteypt | 13,5 tonn |
Steypa, staðsteypt | 121 m3 |
Vegrið á brú | 17 m |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. júlí 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 1. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. apríl 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
G.V. Gröfur ehf., Akureyri | 562.500.000 | 136,3 | 180.550.251 |
Þróttur ehf., Akranes | 464.804.692 | 112,7 | 82.854.943 |
Áætlaður verktakakostnaður | 412.572.575 | 100,0 | 30.622.826 |
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði | 403.832.375 | 97,9 | 21.882.626 |
Nesbræður ehf., Akureyri | 381.949.749 | 92,6 | 0 |