Útboðsnúmer 26-072
Almenn­ings­samgöngur á landi á Austur­landi 2027-2028

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst október 2026
    • 2Opnun tilboða
    • 3Samningum lokið

26. október 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin  ókar hér með eftir tilboðum í almenningssamgöngur á landi á Austurlandi 2027-2028. Þjónustuverkefninu er skipt tvo hluta; annars vegar leiðir 91 og 93 og hins vegar leið 94.

Leiðir 91 og 93:

  • Leið 91: Egilsstaðir – Reyðarfjörður – Egilsstaðir / Egilsstaðir – Neskaupsstaður – Egilsstaðir
  • Leið 93: Seyðisfjörður – Egilsstaðir – Seyðisfjörður

Leið 94:

  • Leið 94: Djúpivogur – Höfn – Djúpivogur / Höfn – Breiðdalsvík – Höfn

Hvor hluti verður metinn sjálfstætt. Heimilt er að gera tilboð í annan hluta eða báða. Einstaka hlutum verður ekki skipt upp.

Samningstími er 2 ár, frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2028 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár í senn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 26. október 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. desember 2026.

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.