Vegagerðin býður hér með út akstur almenningssamgangna milli Patreksfjarðar og Bíldudalsflugvallar annars vegar og milli Bolungarvíkur og Ísafjarðarflugvallar hins vegar.
Þjónustuverkefninu er skipt í eftirtalda tvo hluta:
Leið 66: Patreksfjörður – Bíldudalsflugvöllur – Patreksfjörður
Leið 67: Bolungarvík – Ísafjarðarflugvöllur – Bolungarvík
Heimilt er að gera tilboð í annan hlutann eða báða. Samningstími er 2 ár, frá 1. september 2026 og til 31. ágúst 2028 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum, um eitt ár í senn.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 5. júní 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. júlí 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leið 66: Patreksfjörður – Bíldudalsflugvöllur – Patreksfjörður
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
| Vestfirskar ævintýraferðir ehf. | 59.280.000 | 177,9 | 29.390 |
| Áætlaður verktakakostnaður | 33.315.258 | 100,0 | 3.426 |
| Travel West ehf., Patreksfirði | 29.889.600 | 89,7 | 0 |
Leið 67 – Bolungarvík – Ísafjöarðarflugvöllur – Bolungarvík
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
| Vestfirskar ævintýraferðir ehf., Ísafirði | 43.392.000 | 176,2 | 0 |
| Áætlaður verktakakostnaður | 24.624.960 | 100,0 | -18.767 |