Útboðsnúmer 26-119
Akra­fjalls­vegur (51), hring­torg við Akra­nesveg, eftir­lit og ráðgjöf

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júlí 2026
    • 2Opnun tilboða ágúst 2026
    • 3Samningum lokið

22. júlí 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin, í samstarfi við Akraneskaupstað, Veitur, Landsnet og Ljósleiðarann býður hér með út eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu „Akrafjallsvegur (51), hringtorg við Akranesveg“. Framkvæmdaverkið felst í gerð fjögurra arma hringtorgs á gatnamótum Akrafjallsvegar (51-01/02) og Akranesvegur (509-01), tengingu við Skógarhverfi (gatan Lækjarskógar) ásamt gerð undirganga og stíga.

Val bjóðenda í eftirlit og ráðgjöf með framkvæmdaverkinu fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðenda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 22. júlí 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. ágúst 2026.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 28. ágúst  2026 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.


25. ágúst 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Mannvirkjahönnun ehf., Garðabær
26.040.000
124,0
8.680.000
VSB verkfræðistofa ehf., Hafnarfirði
24.889.100
118,5
7.529.100
VSÓ ráðgjöf, ehf., Reykjavík
21.861.944
104,1
4.501.944
Áætlaður verktakakostnaður
21.000.000
100,0
3.640.000
Verkís hf., Reykjavík
19.427.316
92,5
2.067.316
Efla hf, Reykjavík
19.299.546
91,9
1.939.546
Norconsult Íslandi ehf.
17.360.000
82,7
0