Útboðsnúmer 26-002
Akra­fjalls­vegur (51), hring­torg við Akra­nes

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst júní 2026
    • 2Opnun tilboða júlí 2026
    • 3Samningum lokið

25. júní 2026Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út gerð hringtorgs á Akrafjallsvegi, á mótum Akrafjallsvegar  og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi um Lækjarskóga. Um er ræða gerð hringtorgs, staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg,stígagerð að undirgöngum, lagningu vatns- og hitaveitulagna og annarra fjarskiptalagna og rafstrengja ásamt færslu núverandi háspennustrengja. Innifalið í verkinu er gerð fyllinga og fergingar, útlögn styrktar- og burðarlags, malbikun, niðurlögn ræsa og uppsetning vegriða, lýsingarbúnaðar, skilta og vegbúnaðar, yfirborðsmerkingar, færsla háspennustrengja og lagning vatns- og hitaveitulagna og annarra strenglagna.

 

 

Helstu magntölur eru áætlaðar: 
Fyllingar 
4.000 m³ 
Fláafleygar 
3.000 m³
Aðgerðir vegna sigs, farg
19.500 m³
Styrktarlag 
5.750 m³
Burðarlag 
950 m³
Malbik 
11.750 m2
Kantsteinar 
300 m
Umferðarmerki 
58 stk.
Vegvísar 
8 stk.
Ofanvatnsræsi 
512 m
Fylling við steypt mannvirki
1.400 m
Fylling við steypt mannvirki EPS-blokkir 
1.200 m
Steypumót 
493 m2
Járnalögn 
22.890 kg
Steypa 
164 m³
Götulýsing, skurðgröftur og strengur 
3.380 m
Ljósastaurar, uppsetning 
50 stk.
Lagnir, jarðvinna – gröftur 
6.324 m³
Lagnir, fylling (söndun) 
580 m³
Losun á klöpp
800 m³
Þrýstilagnir fráveitu 
405 m
Kaldavatnslagnir 
265 m
Hitaveitulagnir (DN250) 
588m
Suða/samsetning 
72 stk.
Jarðstrengur háspenna 3x240 Al 
160 m
Háspennustrengir - gröftur, fylling og færsla 
414 m
Fjölpípurör 
341 m

Verkinu skal að fullu lokið 25. nóvember 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 25. júní 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  21. júlí 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.


21. júlí 2026Opnun tilboða

BjóðandiTilboð kr.HlutfallFrávik kr.
Áætlaður verktakakostnaður
616.962.111
100,0
89.521.911
Þróttur ehf., Akranes
594.220.000
96,3
66.779.800
Borgarverk ehf., Borgarnesi
527.440.200
85,5
0