Útboðsnúmer 24-092
Áætl­unar­flug á Íslandi – Reykja­vík – Horna­fjörður – Reykja­vík – Sérleyfi fyrir Vega­gerð­ina

  • Staða útboðs

    • 1Auglýst mars 2025
    • 2Opnun tilboða apríl 2025
    • 3Samningum lokið

13. mars 2025Útboðsauglýsing

Vegagerðin býður hér með út rekstur á áætlunarflugi á Íslandi – sérleyfissamningur, á eftirfarandi
flugleið:

(F1) Reykjavík – Hornafjörður – Reykjavík

Samningstími er 3 ár, frá 1. september 2025 til og með 31. ágúst 2028, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum, í eitt ár í senn.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með fimmtudeginum 13. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. apríl 2025 *.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

*Við birtingu auglýsingarinnar var tilboðsfrestur til 15. apríl 2025. Ákveðið hefur verið að lengja hann til 23 apríl nk. og hefur auglýsingunni verðið breytt í samræmi við það.

23. apríl 2025Opnun tilboða

Styrkfjárhæð fyrir flugleið (F1) er kr. 1.260.000.000 fyrir heildarverkið (3. ár)

Þrjú tilboð bárust fyrir lok tilboðsfrests:

Icelandair ehf., Reykjavík, einingaverð á sæti kr. 21.824 án VSK

Air ehf., Garðabæ, einingaverð á sæti kr. 23.617 án VSK

Norlandair, Akureyri, einingaverð á sæti kr. 44.872 án VSK