Vegagerðin óskar eftir tilboðum í malbikun, gróffræsun malbiks og þurrfræsingu á vegum á Norðursvæði 2026.
Verkið fellst í þurrfræsingu og malbikun á Öxnadalsheiði, 1-p1. Gróffræsun og yfirlögn með malbiki á Akureyri, Sauðárkróki og Siglufirði. Yfirlögn með malbiki á klæðingu í Reykjahlíð við Mývatn og Varmahlíð. Verktaki leggur til allt malbik og burðarlagsefni 0/22mm í styrkingar á Öxnadalsheiði.
Helstu magntölur eru áætlaðar:
Verklok eru 30. september 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 8. júní 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu https://tendsign.is/ fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. júní 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik kr. |
|---|---|---|---|
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði | 348.789.000 | 115,7 | 9.851.240 |
Malbikun Norðurlands, Akureyri | 344.870.350 | 114,4 | 5.932.590 |
Malbikun Akureyrar, Akureyri | 338.937.760 | 112,5 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 301.381.420 | 100,0 | 37.556.340 |