Markmið framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur í Húnaþingi vestra. Einnig að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari og öruggari samgöngum. Ekki er um styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til þess að stuðla að aukinni greiðfærni samgangna.

Fyrirhugað framkvæmdasvæði Vatnsnesvegar (711) mun liggja um ellefu jarðir í Húnaþingi vestra. Vegtengingar liggja að auki að jörðunum Urðarbaki og Sporði. Auk þess eru til skoðunar 9 námur innan jarða í grennd við veginn.

Framkvæmdasvæði þessarar framkvæmdar liggur að stórum hluta innan veghelgunarsvæðis núverandi vegar. Það verður nokkuð mismunandi breitt, því vegurinn verður ýmist lagður á fyllingu eða í skeringu en skeringar verða almennt ekki miklar. Framkvæmdasvæði vegar verður á bilinu 12-57 m breitt. Einnig eru flestar námur fast við veginn svo framkvæmdasvæði þeirra rennur saman við framkvæmda svæði vegarins.