Vegagerðin stendur fyrir endurnýjun á brú á Norðausturvegi (85) yfir Köldukvíslargil skammt frá Húsavík. Verkefnið er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að tryggja öruggar samgöngur og að fækka einbreiðum brúm á stofnvegum. Íhugað var að setja stokk yfir gilið í stað brúar en árið 2022 var endanleg ákvörðun tekin að ráðast frekar í brú.
Verkið er í verkhönnun og áætlað er að hefja framkvæmdir 2029.
Eldri brú er einbreið og uppfyllir ekki öryggiskröfur sbr. stofnleiðum. Ný brú verður samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi og verður alls 80 m löng, með 9,0 m breiðri akbraut og 0,5 m breiðum bríkum hvorum meginn. Verður þá heildarbreidd brúarinnar 10 m. Auk brúarsmíðinnar er einnig gert ráð fyrir endurhönnuðum nærliggjandi vegtengingum innan framkvæmdarinnar.

Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar að fékka einbreiðum brúm á stofnvegum.