Vegagerðin áformar endurbætur á Hringvegi (1) þar sem hann liggur um Búlandsá og Teigarhorn í Berufirði. Um er að ræða endurbætur á u.þ.b 4,5 km löngum kafla í sunnanverðum firðinum, en á kaflanum uppfyllir Hringvegurinn ekki öryggiskröfur Vegagerðarinnar því núverandi brú á Búlandsá er einbreið og eru aðstæður við Teigarhorn mjög þröngar.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að staðla að bættu umferðaröryggi og er framkvæmdin í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að fækka einbreiðum brúm á Hringveginum.
Til að auka öryggi og bæta jákvæða upplifun á ferðamannasvæðinu á Teigarhorni var við breytinguá Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 gert ráð fyrir færslu Hringvegar þar sem hann er nærri bæjarstæði Teigarhorns og fyrir Eyfreyjunesvík. Ekki er um styttingu að ræða á vegkaflanum heldur fyrst og fremst vegabætur sem stuðla að öruggari vegi og aukinni greiðfærni samgangna.
Núverandi brú á Búlandsá var byggð árið 1956. Brúin er 18 m löng og 3,8 m breið og er því einbreið, en auk þess er aðkoman að brúnni ekki talin uppfylla öryggiskröfur. Enn fremur er vegurinn talinn liggja of nálægt bæjarstæði Teigarhorns, eða aðeins í um 50 m fjarlægð frá íbúðarhúsi og innan við 30 m fjarlægð frá útihúsum. Við Teigarhorn liggur vegurinn einnig hátt í landi sem hefur í för með sér mjög bratta aðkomu að hlaði og íbúðarhúsi. Allir þessir liðir verða til þess að ráðast þarf í endurbætur á vegkaflanum.
Nýr vegur verður gerður samkvæmt hönnunarreglum um vegtegund C8, sem er 8,0 m breiður vegur með 7,0 m breiðri akbraut og 0,5 m breiðum öxlum. Vegurinn verður með bundnu slitlagi með hönnunarhraða um 90 km/klst. Planlega og hæðarlega vegarins verður löguð, en til að draga úr alvarleika útafaksturs er þörf á öryggissvæði meðfram vegum. Ný veglína fylgir núverandi vegi á 2,0 km löngum kafla en er utan hans á 2,5 km.

Framkvæmdarsvæði er staðsett rétt norðvestan við Djúpavog.