Þela­mörk – Akur­eyri

  • TegundVegir
  • StaðaFrumdrög, for - og verkhönnun
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturAðskilnaður akstursstefnuStofnvegir
  • Svæði
    • Norðurland

Vegagerðin áformar að leggja nýjan 1+2 veg á um 8,6 km kafla á Hringveginum, frá Þelamörk inn að Akureyri. Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunnar um að auka umferðaröryggi og tryggja greiðari samgöngur. Sá kafli núverandi Hringvegar sem fyrirhuguð framkvæmd nær til er um 7,9 km langur og nær frá Grjótagarði norðan Þelamerkur að hringtorgi við Síðubraut. Þegar komið er framhjá Grjótagarði liggur vegurinn um T-vegamót Hringvegar (1) og Ólafsfjarðarvegar (82).

Verk þetta byggir á endurskoðun frumdraga sem unnin voru árið 2014 fyrir framtíðarlegu ofantilgreinds vegar, ásamt endurskoðun vegamóta á kaflanum. Verkið er í frumdrögum og mun vera uppfært.

Með stækkandi byggð, auknum fyrirtækjarekstri, ferðaþjónustu og síaukinni umferð um svæðið hefur dregið úr umferðaröryggi. Plan- og hæðarlega núverandi vegar uppfyllir ekki kröfur í veghönnunarreglum. Það sama á við um sjónlengdir og kröfur til öryggissvæða, en víða eru skurðir meðfram vegi. Einnig eru vegamót Hringvegar og Ólafsfjarðarvegar í Hörgársveit talin óviðunandi og uppfylla ekki kröfur Vegagerðarinnar hvað varðar halla og sjónlengdir. Sú útfærsla sem Vegagerðin leggur hér fram felst m.a. í fækkun vegtenginga, aðskilnaði akstursstefna, lagfæringu á hliðarsvæðum vega og öruggari vegamótum á vegkaflanum.

Þrjár mögulegar veglínur hafa verið til skoðunar við framkvæmdina frá fyrri frumdrögum 2014 og voru þær notaðar í nýjustu yfirferð til þess að vinna út frá, breyta og lagfæra m.t.t. plan- og hæðarlegu til þess að ná þeim markmiðum sem voru sett með framkvæmdinni: Veglína A er 7,9 km löng og felst í endurbyggingu núverandi vegar, veglína B er 8,6 km löng og liggur neðan núverandi vegar, og veglína C er 8,6 km löng og felst í nýbyggingu við vegamót við Ólafsfjarðarveg (82) og við Lónsbakka en endurbyggingu núverandi vegar þess á milli.

Eldri frumdragaskýrsla frá 2014 er aðgengileg hér að neðan. Verið er að vinna að nýrri skýrslu samhliða frumdragavinnu en hún er ekki fullkláruð enn.

 


Fyrirhugað framkvæmdasvæði er á Hringvegi norðan Akureyrar.

Fyrirhugað framkvæmdasvæði er á Hringvegi norðan Akureyrar.