Vegagerðin áformar endurbyggingu á 11,2 km kafla Snæfellsnesvegar (54) á Skógarströnd í Dalabyggð, frá Heydalsvegi að Gunnarsstöðum. Núverandi vegur er mjór og malarlagður og uppfyllir ekki öryggiskröfur. Nýr vegur fylgir að mestu núverandi vegstæði, en legu verður breytt á nokkrum stöðum og ný brú byggð yfir Laxá. Markmiðið er að bæta samgöngur og umferðaröryggi, leggja bundið slitlag og fækka einbreiðum brúm.
Vegagerðin kynnir hér með endurbyggingu Snæfellsnesvegar (54) á 11,2 km löngum kafla á Skógarströnd í sveitarfélaginu Dalabyggð. Vegurinn er hluti af grunnkerfi samgangna en nú verandi vegur er mjór, með malaryfirborði og uppfyllir ekki öryggiskröfur Vegagerðarinnar. Endurbyggingin er innan byggðarinnar á Skógarströnd á kaflanum frá Heydalsvegi (55) að slitlagsenda við Gunnarsstaði. Endurbyggingin fylgir að mestu núverandi vegi en á þremur stöðum, við Laxá, Hólmlátur og Gunnarsstaðaá (Gljúfurá), er vikið lítillega frá núverandi vegi til að bæta öryggi vegarins. Á Laxá er einbreið brú sem ekki er hægt að breikka og því þarf að byggja nýja brú á ána. Ársdagsumferð um veginn árið 2025 var um 170 bílar á sólarhring. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur um Snæfellsnes. Fram kvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að auka umferðaröryggi, að leggja vegi bundnu slitlagi og fækka einbreiðum brúm. Efnistaka er fyrirhuguð úr skeringum og útvíkkuðum skeringum meðfram vegi.