Vegagerðin áformar endurbyggingu Síðuvegar (716) á 5,8 km löngum kafla á vestanverðu Vatnsnesi í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra. Vegurinn liggur á milli Hringvegar (1) og Vatnsnesvegar (711) og er hluti af grunnkerfi samgangna. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta vegasamgöngur um Vatnsnes. Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að auka umferðaröryggi og að leggja vegi bundni slitlagi.
Unnið er að frumdrögum verkefnis og áformar Vegagerðin að framkvæmt verður á vegkaflanum milli 2032-2034.
Núverandi Síðuvegur (716) er 5,76 km langur og liggur af Hringvegi hjá Víðidalsá að Vatnsnesvegi (711) við bæinn Grund. Á veginum eru ein vegamót, við Borgarveg (717). Vegurinn er samkvæmt vegaskrá tengivegur af vegtegundini C7 og skiptist í tvo kafla við vegamót hans við Borgarveg. Núverandi vegur er aftur á móti mjór malarvegur með útskotum og uppfyllir þess vegna ekki öryggiskröfur Vegagerðarinnar, hvorki samkvæmt vegtegund eða ársdagsumferð (ÁDU), en vegurinn er einkum mikið nýttur af vegfarendum á leiðinni út á Vatnsnes til að skoða m.a. Hvítserk og þau miklu sellátur sem finnast á Vatnsnesi.
Nýr vegur verður breikkaður úr 5,0-5,5 m yfir í 6,5 m með 6,0 m akbraut sbr. hönnunarreglum á vegum í vegflokki C7. Vegurinn mun að öllu leiti fylgja núverandi vegi, nema þar sem beygjur verða víkkaðar. Á núverandi vegi er einnig einbreið brú yfir Reyðarlæk, en áformað er að sú brú verður brotin niður og að komið verður fyrir stálhólk í staðinn.
Þar sem framkvæmdin fylgir að langmestu leyti núverandi veglínu er áætlað að verkið hafi óumtalsverð umhverfisáhrif og er því ekki matsskyld.

Frá Síðuvegi

Kort sýnir fyrirhugað framkvæmdasvæði.