Vegagerðin áformar endurbyggingu Hringvegar um Lagarfljót, frá Selhöfða við Urriðavatn og að vegamótum við Fagradalsbraut á Egilsstöðum, ásamt gerð á nýrri brú yfir Lagarfljót.
Markmið verkefnisins eru að tryggja öruggar, skilvirkar, greiðar og hagkvæmar samgöngur um Hringveg (1) milli Egilsstaða og Fellabæjar sem stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Þessum markmiðum verður náð með því að byggja upp net mannvirkja sem þjóna öllum vegfarendahópum og öllum gerðum ökutækja. Fjöldi tenginga við þjóðveg verða í lágmarki og lögð verður áhersla á öryggi óvarðra vegfarenda innan þéttbýlisins.
Árið 2010 var unnið að frumdrögum fyrir breytingu á framtíðarlegu Hringvegar um Lagarfljót, og byggir þessi framkvæmd á þeirri vinnu, með það markmið að velja veglínu til frekari hönnunar.
Núverandi Hringvegur um svæðið sem er til skoðunar er tveggja akreina vegur sem liggur frá Urriðavatni og í gegnum Fellabæ, um Lagarfljótsbrú og að Egilsstöðum. Á vegkaflanum eru um 20 vegamót, mestmegnis innan Fellabæjar og Egilsstaða. Öll umferð milli austur- og norðurlands fer um þennan vegkafla ásamt allri innanbæjarumferð milli Fellabæjar og Egilsstaða. Samsetning umferðarinnar er því allt frá umferð þungra og stórra ökutækja yfir í mikla umferð óvarðra vegfarenda, vegna þess að vegurinn liggur í gegnum þéttbýlið. Nokkrar gönguþveranir eru á veginum ásamt því að gangstéttir liggja mjög nærri veginum á kafla og er öryggistilfinning á göngustígum og gönguþverunum ekki mikil, vegna nálægðar við mikla og þunga umferð ásamt umferðarhraða í gegnum þéttbýlið.
Fyrsta trébrúin yfir Lagarfljót var byggð 1904 sem einbreið trébrú, og voru undirstöður hennar áfram nýttar þegar brúin var endurbyggð sem tvíbreið árið 1958. Hugað er að byggingu nýrrar brúar þar sem núverandi brú er ekki talin munu þola nútímavæðandi endurbætur, t.a.m. breikkun gönguleiðar.
Framkvæmd þessi er í samræmi við tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040, með fyrirhugaðari fjárveitingu á árunum 2036-2040.

Teikning sýnir tillögur að veglínum fyrir nýja brú yfir Lagarfljót.