Heydalsá – Þorpar

  • TegundVegir
  • StaðaFrumdrög, for - og verkhönnun
  • Verktími2028–2028
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturBundið slitlagÖryggisaðgerðir
  • Svæði
    • Vesturland

Vegagerðin áformar endurbætur á um 3,4 km kafla af Innstrandarveg sunnan Hólmavíkur, milli bæjarins Þorpar og Heydalsá. Framkvæmdin miðar að markmiði samgönguáætlunar um að fækka einbreiðum brúm og að auka umferðaröryggi vegfarenda. Verkið er í forhönnun og gerir núverandi áætlun ráð fyrir að framkvæmt verði 2028.

Núverandi vegur er malarvegur  og uppfyllir ekki öryggiskröfur sem Vegagerðin gerir til stofnvega. Einnig er einbreið brú yfir Heydalsá sem og 2 hættulegar beygjur á kaflanum: Annars vegar brekka í 12% halla á innanverðum Smáhamrahálsi og hins vegar nokkrar krappar beygjur við Hvalvík.

Nýr vegur verður klæddur bundnu slitlagi en mun að öllu óbreyttu liggja mestmegnis í núverandi vegstæði. Kaflinn styttist um 80 m við framkvæmd en engin breyting verður á tengingum. Vegna þessara forsenda er verkið ekki talið hafa umtalsverð umhverfisáhrif, né þurfi það að fara í matsferli vegna umhverfisáhrifa.

 


Innstrandarvegur, horft til vesturs.

Innstrandarvegur, horft til vesturs.