Almanna­skarð – Leirtjörn

  • TegundVegir
  • StaðaFrumdrög, for - og verkhönnun
  • Verktími2026–2027
  • Markmið
      Greiðar samgöngurÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturBundið slitlagÖryggisaðgerðir
  • Svæði
    • Austurland

Vegagerðin áformar endurbætur á Stokksnesvegi í sveitarfélaginu Hornafirði. Framkvæmt verður á tæplega 4.00 km kafla milli ristarhliðs við Almannaskarð og að Leirtjörn. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi en núverandi vegur er burðarlítill malarvegur með slæma legu og takmarkað umferðaröryggi.

Áætluð verklok eru 2027

Núverandi Stokksnesvegur er tæplega 4,5 km langur og liggur frá Hringvegi skammt sunnan Almannaskarðsganga, til suðausturs áleiðis að Stokksnesi. Búið er að endurbyggja veginn með bundnu slitlagi á tæplega 600 m kafla næst Hringvegi og einnig á um 180 m kafla frá Leirtjörn að Horni þar sem vegurinn endar, en utan þess er vegurinn 5-7 m breiður malarvegur sem annar illa aukinni umferð ferðamanna sem farið hefur um hann á síðustu árum. Einnig eru nokkuð víða á veginum bæði krappar beygjur og blindhæðir.

Framkvæmdin er fjármögnuð með fjárveitingu á Tengivegaáætlun 2025-2029, þar sem markmiðið er að styrkja og leggja bundið slitlag á umferðalitla tengivegi. Vegurinn verður breikkaður, styrktur og lagður tvöfaldri klæðingu. Framkvæmdin er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að auka umferðaröryggi og leggja vegi bundnu slitlagi. Ekki er um styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi.

Teikning sem sýnir fyrirhugað framkvæmdasvæði.

Teikning sem sýnir fyrirhugað framkvæmdasvæði.