Gufu­dalsá – Skála­nes

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2020–2021
  • Markmið
      Greiðar samgöngurJákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur
  • Flokkar
      BrúBundið slitlagVegstytting
  • Svæði
    • Vestfirðir

Gufudalsá-Skálanes er eitt af nokkrum verkefnum sem tengjast betrumbótum á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit.

Verkefnið fól í sér endurbyggingu og breikkun á um 6,6 km kafla frá Gufudalsá að Skálanesi. Kaflinn frá Gufudalsá að Melanesi verður ekki hluti af framtíðar Vestfjarðavegi, en mun þjóna umferð um Gufudal þar til þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar verður lokið.

Framkvæmdir hófust sumarið 2020 og verklok voru haust 2021.