Varmá – Gljúfur­holtsá

  • TegundVegir
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2018–2019
  • Markmið
      Öruggar samgöngurGreiðar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      MalbikEndurbæturAðskilnaður akstursstefnuVerktaki - Íslenskir aðalverktakar
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í fyrsta hluta breikkun Hringvegar ásamt gerð nýrra gatnamóta við Vallaveg og Ölfusborgaveg. Verkinu lauk 2019. Verktaki var Íslenskir aðalverktakar hf., en voru þeir lægstbjóðendur í verkið með tilboð sem jafngilti tæplega 109% af áætluðum verktakakostnaði.

 

Framkvæmdin var fyrsti áfangi í tvöföldun Hringvegar á um 13,6 km kafla frá Hveragerði og austur yfir Selfoss, í þágu þess að færa þungaumferð út úr þéttbýliskjörnum á Suðurlandi yfir umferðarþyngsta hluta Suðurlandsvegar.

Einnig innifalið í 1. áfanga framkvæmdarinnar voru gerð nýrra gatnamóta við Vallaveg og Ölfusborgaveg, sem og gerð nýrra hliðarvega sem tengjast nýjum vegamótum, annars vegar Ölfusvegar frá Ölfusborgavegi að Hvammsvegi og hins vegar Ásnesvegi frá Vallavegi að Ásnesi. Inni í verkinu var einnig breikkun brúar yfir Varmá og undirgöng austan Varmár fyrir gangandi og ríðandi.

Markmið framkvæmdarinnar var að bæta umferðaröryggi og tryggja greiðari samgöngur um Suðurlandsveg, með áherslu lagða á að jákvæð áhrif yrðu á samfélagið vegna framkvæmdar. Frummatsskýrsla var unnin 2009 og er hún aðgengileg á yfirlitssíðu.


Myndin sýnir svæði verkefnis í heild sinni.

Myndin sýnir svæði verkefnis í heild sinni.