Verkefnið er 2. áfangi í breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss. Framkvæmdarkaflinn er 7,1 km. Framkvæmdir hófust í apríl 2020 og var þeim lokið fyrri hluta 2023. Samið var við Íslenska aðalverktaka í tengslum við verkefnið, en tilboð þeirra hljóðaði upp á rúmlega 96% af áætluðum verktakakostnaði og voru þeir því lægstbjóðendur í framkvæmdina.
Efnisyfirlit
Hringvegur (1)Hringvegur (1) Biskupstungnabraut - Hveragerði, 2. áfangi, Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá – Eftirlit (EES útboð)
Hringvegur (1)Biskupstungnabraut - Hveragerði, 2. áfangi, Biskupstungnabraut - Gljúfurholtsá (EES útboð)
Um var að ræða nýbyggingu Hringvegar að hluta, gerð nýrra vegamóta við Kirkjuferjuveg og Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs við Biskupstungnabraut, nýbyggingu Ölfusvegar, breytingu Þórustaðavegar og Biskupstungnabrautar sem og gerð heimreiða. Einnig innifalið í áfanganum var bygging fimm steyptra brúa og undirganga ásamt tveggja reiðganga úr stáli.
Framkvæmdin var annar áfangi í tvöföldun Hringvegar á um 13,6 km kafla frá Hveragerði og austur yfir Selfoss, í þágu þess að færa þungaumferð út úr þéttbýliskjörnum á Suðurlandi yfir umferðarþyngsta hluta Suðurlandsvegar. Með framkvæmd þessari fækkuðu vegamót á vegkafla úr 11 yfir í 2.
Markmið framkvæmdarinnar var að bæta umferðaröryggi og tryggja greiðari samgöngur um Suðurlandsveg, með áherslu lagða á að jákvæð áhrif yrðu á samfélagið vegna framkvæmdar. Frummatsskýrsla var unnin 2009 og er hún aðgengileg á yfirlitssíðu.