Breið­árlón í Sveitar­félag­inu Horna­firði

  • TegundEfnistaka úr námu
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2016–2016
  • Markmið
      Jákvæð byggðaþróunÖruggar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      EndurbæturÖryggisaðgerðir
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin stóð fyrir framkvæmd í Sveitarfélaginu Hornafirði, þar sem framkvæmd var efnistaka úr námu E-63, Breiðárlón við Breiðá. Var efnið notað við viðgerðir á rofvörnum Jökulsár á Breiðamerkursandi.

Náman er norðan við Breiðá og um 1,2 km norðaustan við Breiðárlón og er á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Að námunni liggur tæplega 7 km langur slóði frá Hringveginum sem nýttar voru sem námuvegur.

 

Matsskylda námunnar var könnuð í mars árið 2016, samkvæmt 6 gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b., og lá ákvörðun Skipulagsstofnunar fyrir um að framkvæmdin væri ekki matsskyld þann 20. maí 2016.

Við framkvæmdir verður dregið úr raski eins og mögulegt var með því að takmarka framkvæmdasvæði. Við frágang var haft samráð við Sveitarfélagið Hornafjörð varðandi aðgerðir sem framkvæmdar voru í þágu þess að gera sárið í landinu sem minnst áberandi.

Með góðri hönnun, frágangi og eftirliti með framkvæmdum tókst að draga verulega úr neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar á landslag.