Verkið felst í endurbyggingu vegar (Hringvegur) á um 800 m löngum kafla frá afleggjara að
tengivirki Landsnets austur fyrir Dufþaksbraut, í Rangárþingi Eystra, gatnamótum við Hvolsveg og Hlíðarveg ásamt göngu- og hjólastíg
Kaflinn er um 800 m, frá afleggjara að tengivirki Landsnet austur fyrir Dufþaksbraut. Einnig skal leggja göngu- og hjólastíga. Slitlag er malbik.
Verkið er hannað af Verkfræðistofunni Eflu, unnið í samráði við Rangárþing Eystra sem einnig situr verkfundi.
Helstu magntölur eru:
– Fyllingar 5.000 m³
– Skeringar 15.000 m³
– Ofanvatnslagnir 1.200 m
– Styrktarlag 9.200 m³
– Burðarlag 1.400 m³
– Malbik 2650 tonn
– Umferðareyjar 6000 m2
– Ljósastaurar 46 stk
Verkið var boðið út í júní og tilboð opnuð 7. júlí.
Eitt tilboð barst að upphæð 428.568.824,- Bjóðandi var Þjótandi ehf.
Kostnaðaráætlun verkkaupa við opnun var 426.528.189,-
Helsti tilgangur framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi akandi, gangandi og hjólandi auk þess að bæta umferðarflæði í gegnum bæinn.
Ákvæði í útboðsgögnum um að ekki megi hefja framkvæmdir fyrr en eftir 18. ágúst en þá hefur umferð minnkað nokkuð á Hringveginum.
Fyrri áfangi skv. útboðsgögnum er að jarðvegsskipta bæði sunnan og norðan núverandi vegar ásamt að ganga frá lögnum eins og hægt er. Verklok á fyrri áfanga er 15.12.2026 og skal uppgjöri lokið fyrir áramót.
Seinni áfangi er þá að malbika akreinar utan núverandi vegar, veita umferð á þær akreinar og ganga frá svæðum sem nú eru undir Hringvegi.
Ljúka skal við malbikun allra akreina fyrir 29.07.2027 og lokafrágangi 01.09.2027.
Heildar verktími er rétt um eitt ár.
Framkvæmdin mun hafa áhrif á alla vegfarendur, íbúa og fyrirtæki og því mikilvægt að framkvæmdin sé unnin í sátt við alla hagaðila eins og kostur er.
Samkvæmt verkáætlun verktaka átti að byrja framkvæmdir 28 ágúst en vegna anna hefur það ekki náðst en ætlunin er að byrja framkvæmdir í vikunni 21-25 sept. 2026.
Tafir hafa ekki komið að sök þar sem heildarverktími mun halda sér þeas verki skal lokið 1. sept. 2027.
Verkáætlun verktaka – einstaka áfangar verða tímasettir nánar.
1.skref
Áætlað er að byrja sunnan vegar, vestast og vinna að tengingu við apótekið, búin verður til bráðabirgðatenging fyrir apótek.
2.skref
Tengingu að apóteki lokað en bráðabirgðatenging opnuð i staðinn. Unnið að eystri tengingu inn á planið við N1, vestari tengingu lokað.
3.skref
Opnað fyrir tengingu að apóteki, bráðabirgðatengingu lokað, opnað fyrir vestari tengingu að N1 og austari tengingu lokað. Unnið að enda kafla og eystri tenging opnuð þegar því er lokið.
Ætlun verktakans er að klæða þessa akrein og setja umferðina á. Jafnframt er ætlunin að loka nyrstu akrein (sem núna er til vesturs) og setja umferðina vestur á núverandi hægri akrein (ef horft er til austurs). Umferðinni verður semsé hliðrað til suðurs um eina akrein.
4. skref
Byrjar vestast og vinnur sig að tengingu að Hvoli, tenging að Björk lokað.
5. skref
Opnað fyrir tengingu að Björk en tengingu að Hvoli lokað. Unnið að tengingu við Krónuna.
6. skref
Opnað fyrir tengingu að Hvoli en tengingu að Krónunni lokað.
7. skref
Opnað fyrir tengingu að Krónunni en Hlíðarvegi lokað, hjáleið verður um Hvolsveg. Unnið að enda kafla, unnið upp með Hlíðarvegi, Dufþaksbraut lokað. Hjáleið Dufþaksbrautar verður um Vallarbraut og Hvolsveg. Kafli kláraður og tengingar opnaðar. Fyrri áfanga er þá lokið.
Kappkostað verður að stytta lokunartíma á tengingum eins og kostur er.
Ekki verður leyfilegt að hliðra umferð um eina akrein fyrr en bundið slitlag verður komið á syðstu akrein.
Seinni áfangi verður útfærður í smáatriðum þegar líður á verkið og í takti við framgang verksins.
Ætlunin er að lokanir á tengingum verði tilkynntar í tíma til íbúa og vegfarenda bæði á vef Vegagerðarinnar og Rangárþings ytra.