Verkefnið fól í sér endurbyggingu og klæðningu á 7,4 km löngum kafla á Þingskálavegi (268-01/02) milli Heiðar og Bolholts á Rangárvöllum í Rangárþingi Ytra. Vegurinn er að stærstum hluta í sömu veglínu og áður en færist til á um 300 m kafla við bæinn Heiði, þar sem lagt var nýtt ræsi í Heiðarlæk.
Eldri vegur var malarvegur sem uppfyllti ekki kröfur veghönnunarreglna miðað við aukna umferð. Markmið framkvæmdarinnar var að bæta vegasamgöngur á svæðinu, auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum í Rangárþingi Ytra. Vegurinn er nú hærri og breiðari en eldri vegur, með bundnu slitlagi og bættum sjónlengdum.
Ekki var um styttingu að ræða heldur fyrst og fremst vegabætur til að auka umferðaröryggi.
Ýtarlegri upplýsingar um framkvæmdina má finna í meðfylgjandi skýrslu og teikningum.
Verktaki var Þjótandi á Hellu sem var lægstbjóðandi í útboðsferli, en hljóðaði tilboð hans upp á rúmlega 82% af áætlaðum verktakakostnaði. Verkið hófst í mars 2024 og var því lokið september sama ár.

Ræsi við Heiðarlæk.

Kort af framkvæmdasvæðinu.