Efnistaka úr Selja­lands­heiðar­námu

  • TegundEfnistaka úr námu
  • StaðaFramkvæmd lokið
  • Verktími2018–2018
  • Markmið
      Umhverfislega sjálfbærar samgöngurGreiðar samgöngur
  • Heimsmarkmið
      8. Góð atvinna og hagvöxtur9. Nýsköpun og uppbygging
  • Flokkar
      Hafnir í grunnnetiEndurbæturÖryggisaðgerðir
  • Svæði
    • Suðurland

Vegagerðin stóð fyrir efnistöku úr Seljalandsheiðarnámu E-422 í Rangárþingi eystra þar sem tekið var um 40.000 m3 af grjótvarnarefni og kjarna af um 4.000 m2 svæði til að nota í brimvarnir við Landeyjarhöfn. Seljalandsheiðarnáma var opnuð árið 2008 vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. Efnistakan var innan svæðis sem þegar hefur verið raskað.

Framkvæmdin var tilkynnt til Skipulagsstofnunar í samræmi við 6. gr. laga nr.106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum. Náman í Seljalandsheiði er innan hverfisverndarsvæðis Hv-624, Fjallabakssvæðis. Efnistaka þessi féll því undir skilgreiningu flokks B í lið 2.02 í 1. viðauka: Efnistaka og/eða haugsetning á verndarsvæðum.

Á vetrarmánuðum áður var algengt að efni settist á milli garðsenda og framan við þá við hafnarmynni Landeyjahafnar. Þegar höfnin lokaðist með þessum hætti var erfitt að opna hana aftur því erfitt er að dýpka með dýpkunarskipi nema við góðar aðstæður í hafnarmynninu. Til að leysa úr setvandamálum við hafnarmynnið að vetrarlagi var áætlað að endurbæta hafnaraðstöðuna, með því að leggja steyptan veg út eftir báðum görðum að innan verðu og út á garðsendana þar sem gert var steypt plan.

Við þessar breytingar var kleyft að koma færanlegum krana út á garðsendana. Áætlað var að kraninn yrði nýttur til dýpkunar með sanddælu frá landi, sem varð ekki að, en einnig gæti hann nýst með krabba ef dæla bilar eða aðstæður eru óhagstæðar til dælingar. Með þeim hætti yrði hægt að halda hafnarmynninu í æskilegu dýpi við mun óhagstæðari aðstæður en mögulegt er með dýpkunarskipi.

Vegna endurbótanna var nauðsynlegt að sækja efni í grjótvörn, og var það sótt í námu E-422 á Seljalandsheiði. Við gerð Landeyjahafnar var skilinn eftir grjótlager á svæði vestan hafnarinnar, en sá lager hafði verið tæmdur og því nauðsynlegt að koma upp nýjum lager vegna viðhalds og endurbóta á höfninni.