
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin föstudaginn 6. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut frá kl. 09:00-16:30. Ráðstefnan er nú haldin í 25. sinn.
Dagskráin verður að venju bæði fjölbreytt og spennandi. Að þessu sinni mun Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull og stofnandi Ueno og Ramp Up, flytja lykilerindi ráðstefnunnar undir yfirskriftinni: Að finna leiðina á leiðinni.
Alls verða 15 rannsóknarverkefni til umfjöllunar sem spanna fjölbreytt svið, allt frá mannvirkjum og umferðarmálum til umhverfisrannsókna og náttúruvár. Samhliða erindunum verður veggspjaldasýning þar sem kynnt verða fleiri rannsóknarverkefni.
Ráðstefnustjóri í ár verður Sævar Helgi Bragason, dagskrárgerðarmaður, rithöfundur og vísindamiðlari.
Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktökum og öðrum áhugamönnum um samgöngur og rannsóknir. Í fyrra sóttu um 300 manns ráðstefnuna. Rúmur tími gefst til skrafs og ráðagerða í kaffihléum og matartíma.

Dagskrá Rannsóknaráðstefnunnar.