Opið hús í Myllu­bakka­skóla. Tvöföld­un Reykja­nesbrautar – kynn­ing á umhverf­ismati

  • Hvar?Myllubakkaskóli, Sólvallagötu 6a, 230 Reykjanesbæ
  • Hvenær?5. október 2026 kl. 16:30 - 18:30
Reykjanesbraut til suðurs.
Vegagerðin stendur fyrir opnu húsi mánudaginn 5. október kl. 16:30-18.30 í Myllubakkaskóla í Keflavík.
Niðurstöður umhverfismats vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar á 4,7 km kafla milli Hafnavegar og Garðskagavegar verða til kynningar.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og ráðgjafateymi verða á staðnum til að svara spurningum og veita nánari upplýsingar um umhverfismatið, framkvæmdina og áhrif hennar á nærumhverfið.
Öllum er velkomið að mæta á opna húsið.
Umhverfismatsskýrslan er nú í kynningarferli í Skipulagsgátt og er opið fyrir umsagnir og athugasemdir til 13. október.
Sjá nánar á vef Skipulagsgáttar:
https://skipulagsgatt.is/issues/2024/853