Níunda rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar var haldin föstudaginn 5. nóvember og þótti heppnast vel. Flutt voru 21 erindi um rannsóknarverkefni sem styrkt eru af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar, hvert öðru áhugaverðara.
Samkvæmt vegalögum skal 1,5 prósent af mörkuðum tekjum til vegamála renna til rannsókna- og þróunarstarfs. Erindin á ráðstefnunni endurspegla hluta þess starfs.
Flestum rannsóknarverkefnum lýkur með útgáfu skýrslu og má þær finna hér á vef Vegagerðarinnar.
Efnisyfirlit
Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2010
Ríflega 150 manns sóttu ráðstefnuna. Erindin voru flutt af vegagerðarfólki jafnt sem öðrum. Augljóst var af flutningi erindanna að frummælendur höfðu brennandi áhuga á viðfangsefnum sínum og kunnu vel að meta þau tækifæri sem gefast til rannsóknarstarfs með rannsóknarsjóðnum. Það má líka ljóst vera, hvað Vegagerðina áhrærir að stofnunin þarf ekki að hafa áhyggjur með slíkt starfsfólk innanhúss sem augljóslega ann sínu starfi og sinnir rannsóknum af einurð.
Setning (Þórir Ingason, Vegagerðin) |
Leiðbeiningarit um efniskröfur og vinnsla steinefna til vegagerðar (Hafdís Eygló Jónsdóttir og Gunnar Bjarnason, Vegagerðin) (ágrip GBj) (ágrip HEJ) |
Leiðbeiningar um hönnun vega (Kristján Kristjánsson, Vegagerðin) (ágrip) |
Þungaálag reiknað út frá ferilgreiningu (Einar Pálsson, Vegagerðin) (ágrip) |
Rannsókn á þróun hrýfi (sléttleika) nýbygginga og festunar eldri vega (Valgeir Steinn Kárason, Vegagerðin) (ágrip) |
NordFoU Performance Prediction Models (Sigurður Erlingsson, HÍ) |
Roadex, vegir á norðurslóðum (Haraldur Sigursteinsson, Vegagerðin) (ágrip) |
Malarslitlag, klæðing, malbik – samanburður á valkostum (Ingvi Árnason, Vegagerðin) (ágrip) |
Bindiefni til klæðinga (Sigursteinn Hjartarson, Vegagerðin) (ágrip) |
Hönnun þjóðvega í þéttbýli (Erna Bára Hreinsdóttir, Vegagerðin) (ágrip) |
Bifhjól, vegir og umferðaröryggi (ágrip) (Njáll Gunnlaugsson, Sniglar og Daníel Árnason, Vegagerðin) |
Aðreinar og fráreinar – slysatíðni (Þorsteinn R. Hermannsson og Grétar Þór Ævarsson, Mannviti) (ágrip) |
Ferðaveðurspá, vindhviður og aðrir veðurþættir sem hafa áhrif á umferð (Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktin) (ágrip) |
Loftslagsbreytingar og vegagerð (Skúli Þórðarson, Vegsýn) (ágrip) |
Votlendi og vegagerð (ágrip) (Hlynur Óskarsson, LbHÍ) |
Vistvænar almenningssamgöngur í dreifbýli (ágrip) (Ingigerður Erlingsdóttir, Þróunarfélag Austurlands og Freyr Ingólfsson, Mannviti) |
Sérakreinar strætisvagna á Höfuðborgarsvæðinu (ágrip) (Kristveig Sigurðardóttir, Almenna verkfræðistofan) |
Skipulag á höfuðborgarsvæðinu, sjálfbærar samgöngur (ágrip) (Harpa Stefánsdóttir, Arkitektúra og Hildigunnur Haraldsdóttir, Hús og skipulag) |
Ferðavenjur eftir efnahagshrun (veturinn 2009-2010 og sumarið 2010) (Bjarni Reynarsson, Landráð) (ágrip) |
Arðsemismat framkvæmda (Axel Hall, HR) |
Jöklarannsóknir (ágrip) (Jöklahópur Jarðvísindastofnunar Helgi Björnsson, Finnur Pálsson, Sverrir Guðmundsson, Eyjólfur Magnússon) |
Þegar strengir Hörpunnar slitna (Ríkharður Kristjánsson, ÍAV) |
Þórir Ingason, Vegagerðinni setti ráðstefnuna
Gunnar Bjarnason, Vegagerðinni