Rann­sóknar­ráðstefna Vega­gerðar­innar 2007

Yfir 150 manns sóttu 6. ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem haldin var á Hilton Hotel Nordica þann 2. nóvember síðastliðinn.

Á ráðstefnunni voru kynnt 20 verkefni sem hafa fengið styrk úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar á þessu og síðasta ári. Það er þó aðeins hluti af þeim fjölda verkefna sem fá styrk, en á hverju ári undanfarið hefur ríflega 100 milljónum króna verið veitt í yfir 100 verkefni. Umsóknir hafa þó alltaf verið mun fleiri og oft þurft að hafna góðum verkefnum.

Ráðstefnan var haldin í Hilton Hotel Nordica

Í vegalögum er bundið að 1% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar skuli renna í rannsókna og með nýjum vegalögum sem taka gildi um næstu áramót er þetta hækkað í 1,5%. Þetta mun hafa áhrif á rannsóknarsjóðinn frá og með árinu 2009, þannig að þá verður hægt að sinna fleiri umsóknum en áður.

Skýrslur og niðurstöður rannsókna eru birtar hér á vefnum jafnóðum og þær liggja fyrir.

Nú er hægt að nálgast ágrip af erindum á ráðstefnunni og einnig hægt að skoða glærur sem fyrirlesarar notuðu, sjá hér fyrir neðan.

Dagskrá ráðstefnunnar með erindum og ágripum:

Setning (Þórir Ingason, Vegagerðin)
Hönnun hljóðvarna í þéttbýli: viðhorf til sjónrænnar upplifunar (Kristín Þorleifsdóttir, Hornsteinar arkitektarágrip
Steinsteypunefnd í 40 ár (Hákon Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Rbágrip
Grænt asfalt (Sigursteinn Hjartarson, Vegagerðinágrip
Kvörðun frostdýptarmæla út frá falllóðsmælingum á vegum (Skúli Þórðarson, Vegsýn og Nicolai Jónasson, Vegagerðinniágrip
Skráning vettvangsupplýsinga í handtölvu (Haukur Garðarsson, VGK-Hönnun og Hersir Gíslason, Vegagerðinniágrip
EuroRAP og umhverfi vega (Ólafur Kr. Guðmundsson, FÍBágrip
Útafakstur og bílveltur (Sævar Helgi Lárusson, Rannsóknanefnd umferðarslysaágrip
Óhappatíðni í beygjum og langhalla (Haraldur Sigþórsson, Línuhönnun og Einar Pálsson, Vegagerðinniágrip
Ferilgreining, þungaálag og þungaskattur (Björn Ólafsson, Vegagerðinágrip
Vettvangsskráning (Ásbjörn Ólafsson, Vegagerðinágrip
Aldraðir í umferðinni (Dagbjört H. Kristinsdóttir, Slysavarnafélagið Landsbjörgágrip
Svifryksmengun í Reykjavík (Þorsteinn Jóhannsson, Umhverfisstofnunágrip
Tengsl umferðar við styrk svifryksmengunar (Þröstur Þorsteinsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslandságrip
Landris og eldvirkni vegna rýrnunar Vatnajökuls: Áhrif á hönnun mannvirkja og vegakerfis (Freysteinn Sigmundsson, HÍágrip
Volcanogenic hazards and resultant risks to road systems and infrastructure: preliminary assessments at Snæfellsjökull (Kate Smith, HÍágrip
Könnun á hegðun Skaftárhlaupa með mælingum á hita og vatnsborði í Skaftárkötlum (Þorsteinn Þorsteinsson, Orkustofnunágrip
Tourists visiting Þórsmörk lack knowledge and awareness of Katla and jökulhlaup hazard. (Deanne Bird, Guðrún Gísladóttir og Dale Dominey-Howes, Háskóla Íslands)
Leiðbeiningar Vg fyrir skipulagshöfunda (Smári Johnsen, VSÓágrip
Ferðamennska við Laka (Anna Dóra Sæþórsdóttir, HÍágrip
Áhættu- og áfallaþolsgreining vegakerfisins í Reykjavík (Böðvar Tómasson, Línuhönnun) ágrip
Mannvirki og loftslagsbreytingar (Þorsteinn I Sigfússon, Nýsköpunarmiðstöð Íslandságrip

Veggspjöld til sýnis á ráðstefnunni

Gestir ráðstefnunnar í kaffihlé

Gestir ráðstefnunnar í kaffihlé

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2007

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2007