Rann­sóknar­ráðstefna Vega­gerðar­innar 2020

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í Hörpu, föstudaginn 30. október 2020 í nítjánda sinn. Vegna Covid-19 faraldursins var ráðstefnan rafræn og var öllum að kostnaðarlausu.

Fyrirkomulag ráðstefnunnar var með nokkuð svipuðu sniði og undanfarin ár að undanskildu því að engir áhorfendur voru í salnum Norðurljósum, heldur var fyrirlestrum streymt beint til þátttakenda. Gefinn var kostur á fyrirspurnum eftir hverja fyrirlestraröð.

Erindin á ráðstefnunni voru fjölbreytileg en þau féllu undir fjóra flokka Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar; mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Fundarstjóri var G. Pétur Matthíasson

 

Ráðstefnan fór fram að öðru sniði en vant er sökum heimsfaraldurs, en þáttaka á ráðstefnunni fór fram í gegnum netið.

Heiti og flytjendur erinda

Setning, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
Gleði og þrautseigja á krefjandi tímum, Anna Steinsen, stjórnendamarkþjálfi, heilsumarkþjálfi og fyrirlesari
Rannsóknir á bikbundnum slitlögum – Sögulegt yfirlit, Pétur Pétursson, PP-Ráðgjöf ehf.  – Ágrip
Eru smektít og ættingjar óvinir viðloðunarefna?, Hafdís Eygló Jónsdóttir, Erla María Hauksdóttir, Vegagerðin, og Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Mannvit hf.  –Ágrip
Hágæðasteypa í brúargerð, Ólafur H. Wallevik, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands 
Vík í Mýrdal – Hætta á sjávarflóðum og sjóvarnir, Bryndís Tryggvadóttir, Vegagerðin  – Ágrip
Notkun á yfirborðsbylgjum við mat á stífnieiginleikum jarðvegs og jarðvegsfyllinga, Elín Ásta Ólafsdóttir, Háskóli Íslands  – Ágrip
Umferðarhraði í hringtorgum, Berglind Hallgrímsdóttir, EFLA hf.  – Ágrip
Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga, Svanhildur Jónsdóttir, VSÓ Ráðgjöf ehf.  – Ágrip
Hver eru öryggisáhrifin af því að fjölga óvörðum vegfarendum?, Höskuldur Kröyer, Trafkon AB  – Ágrip
Greina aðstæður fyrir óvarða vegfarendur með myndgreiningu, Ragnar Gauti Hauksson, EFLA hf.  – Ágrip
Leiðarveðurspáþjónustur Veðurstofu Íslands, Hróbjartur Þorsteinsson  – Ágrip
Samgöngumat – Leiðbeiningar, Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit hf.  – Ágrip
Áhrif breytinga Skeiðarárjökuls á farveg og rennsli Súlu, Finnur Pálsson, Jöklahópur Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands  – Ágrip
Sveigjanleg og aðlögunarhæf skipulagsgerð fyrir hafnir [erindi flutt á ensku], Majid Eskafi, Háskóli Íslands  – Ágrip
Áhrif innleiðingar deilibíla á ferðavenjur og bílaeign, Daði Baldur Ottósson, EFLA hf.  – Ágrip
Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngum, Gísli Guðmundsson, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands  – Ágrip

 

Veggspjöld

Samanburður á mælingum á sjávarborði og líkanreikningum með Delft3D-FM og greining áhrifaþátta strandflóða, Kévin Dubois, Angel Ruiz-Angulo, Halldór Björnsson, Sigurður Sigurðarsson, G. Orri Gröndal.

Hægt er að horfa á streymið hér fyrir neðan.

Gleði og þrautseigja á krefjandi tímum

Anna Steinsen, stjórnendamarkþjálfi, heilsumarkþjálfi og fyrirlesari hélt upphafserindi ráðstefnunnar. Erindið bar heitið: Gleði og þrautseigja á krefjandi tímum. Anna Steinsen hefur undanfarin ár séð um rekstur námskeiða fyrir ungt fólk og veitt ráðgjöf fyrir fyrirtæki bæði innanlands og erlendis. Fyrir störf sín hefur hún verið verðlaunuð á alþjóðavettvangi.

Ráðstefnan var rafræn í ár og var send út frá Hörpu.

Ráðstefnan var rafræn í ár og var send út frá Hörpu.

Anna Steinsen, KVAN

Anna Steinsen, KVAN