Rann­sóknar­ráðstefna Vega­gerðar­innar 2019

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í Hörpu, föstudaginn 1. nóvember 2019 í átjánda sinn.

Fundarstjóri var G. Pétur Matthíasson

 

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2019

Fjölmennt var á ráðstefnuna.

Heiti og flytjendur erinda

 

Setning, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
Hvað mun okkur finnast? – Um gildismat framtíðarinnar, Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður.  – Ágrip
Notkun Coltrack við að gera malarvegi að bundu slitlagi á Íslandi, Björk Úlfarsdóttir, Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas HF  – Ágrip
Endurvinnsla frálagsefna í vegagerð, Þorbjörg Sævarsdóttir, EFLA  – Ágrip
Umhverfisvæn brúarsteypa, Ólafur Wallevik, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Úttektir og ástandsmat klæðinga á Vestfjörðum, Pétur Pétursson, PP-ráðgjöf  – Ágrip
Burðargeta steyptra brúa – brotprófun brúar á Steinavötn, Guðmundur Valur Guðmundsson, Vegagerðin  – Ágrip
Þróun á kerfi sjávarborðsmælinga [erindi féll niður], G.Orri Gröndal, Vegagerðin  – Ágrip
Mikilvægi mótlægra umferðarljósa, Haraldur Sigþórsson, VHS  – Ágrip
Slysagreining. Ávinningur af óhindruðum beygjustraumum. Anna Guðrún Stefánsdóttir, Verkís  – Ágrip
Rannsóknarverkefni um mat á tíðni rauðljósaaksturs, Berglind Hallgrímsdóttir, Daði Baldur Ottósson, EFLA  – Ágrip
Áhrif 5G á samgönguinnviði í framtíðinni, Hrönn Karolína Sch. Hallgrímsdóttir og Gunnar Páll Stefánsson, Mannvit  – Ágrip
Samflutningur farþega og farms – bættar almenningssamgöngur á landsbyggðinni, Andreas Macrander, Hjólafærni, Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni og Ingi Gunnar Jóhannsson, Hugarflug ehf.  – Ágrip
Áreiðanleiki hviðuspáa í Harmonie-Arome líkaninu, fylgni spáa, viðvarana og mælinga, Elín Björk Jónasdóttir og Ingibjörg Jóhannesdóttir, Veðurstofan  – Ágrip
Greining á kerfum og vinnuumhverfi í vaktstöð Vegagerðarinnar, Halla Katrín Svölu- og Arnardóttir, EFLA  – Ágrip
Rafbílar – áhrif á hljóðstig og tíðniróf, Kristinn Örn Björnsson, EFLA  – Ágrip
Losun svifryks frá gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu – ferlar og líkan [erindi flutt á ensku], Brian Barr, Háskóla Íslands  – Ágrip
Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngunum, Gísli Guðmundsson, Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslands  – Ágrip
Greining á samfélagslegum og hagrænum ávinningi bættra samgangna – rýni á rannsóknaraðferðum, Eva Dís Þórðardóttir, EFLA  – Ágrip
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin, Bryndís Skúladóttir, VSÓ  – Ágrip

Veggspjöld

Notkun efnisins Humidur við brúar- og bryggjuviðgerðir. Sjótækni ehf.
Prófanir á mélusýnum sem notuð eru í malbik hérlendis.  Pétur Pétursson, PP ráðgjöf
Samgönguskipulag og sjálfbærni.  Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit
Samþætting hjólreiða og Borgarlínu.  Jóhanna Helgadóttir, EFLA
Vöruflutningar – vörumóttaka.   Jakob Jóhann Sveinsson og Svanhildur Jónsdóttir (VSÓ)

Hvað mun okkur finnast?

 

Bergur Ebbi, rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðasmiður, heldur upphafserindi ráðstefnunnar. Erindið ber heitið; Hvað mun okkur finnast? Um gildismat framtíðarinnar. Bergur er með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og blaðamennsku. Meðal umfjöllunarefna í verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd fólks, stjórnmál, valdajafnvægi, breytt heimsmynd, tíska og tíðarandi. Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université deCergy Pontoise í París.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2019

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2019

Bergþóra Þorkelsdóttir

Bergþóra Þorkelsdóttir