22. júlí 2026
Viðgerð á mótor Herjólfs lokið – Baldur aftur á Breiða­fjörð

Viðgerð á öðrum rafmótor Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs lauk í dag. Skipið siglir til Vestmannaeyja síðdegis og hefjast reglulegar siglingar samkvæmt áætlun í fyrramálið, fimmtudaginn 23. júlí. Breiðafjarðarferjan Baldur sem hefur leyst Herjólf af siglir í nótt í Stykkishólm og ráðgert er að Baldur hefji siglingar á Breiðafirði á ný föstudaginn 24. júlí.

Í Herjólfi eru tveir rafmótorar og bilaði annar þeirra þann 11. apríl síðastliðinn. Síðan hefur verið unnið í því að gera við mótorinn en senda þurfti hann á verkstæði í Hollandi til viðgerðar. Eftir að mótorinn kom til landsins þurfti að taka Herjólf úr siglingum svo unnt væri að koma honum fyrir að nýju. Verkið fór fram í Þorlákshöfn og þurfti að rjúfa bíladekkið til að koma mótornum á sinn stað. Uppsetningu mótorsins lauk í gær og í dag var lokið við suðuvinnu og annan frágang. Herjólfur siglir því frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja síðdegis og hefst sigling samkvæmt áætlun í fyrramálið, fimmtudaginn 23. júlí.

Tveir nýir rafmótarar hafa verið pantaðir til að eiga til vara ef samskonar bilun kemur upp. Rafmótorarnir tveir eru mismunandi og þarf því sitt hvorn. Þessir mótorar eru ekki hilluvara og tekur nokkra mánuði að smíða þá og fá til landsins.

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs

Viðgerð á vél Herjólfs