7. apríl 2026
Víða skemmd­ir í vegum

Vegagerðin vill vekja athygli vegfarenda á því að víða eru skemmdir í vegum, sérstaklega í kjölfar rysjótts veðurfars sem hefur verið viðvarandi þar sem hiti og frost skiptast á. Við slíkar aðstæður geta holur myndast hratt, einkum í rigningartíð og mikilli bleytu.

Starfsfólk Vegagerðarinnar vinnur að því að laga holur í vegum sem myndast hafa í vetur.

Starfsfólk Vegagerðarinnar vinnur að því að laga holur í vegum sem myndast hafa í vetur.

Starfsfólk Vegagerðarinnar vinnur nú að viðgerðum á holum víða um land og er brugðist við eins fljótt og unnt er þegar skemmdir koma í ljós eða ábendingar berast. Um er að ræða neyðarviðgerðir á vegskemmdum til að koma í veg fyrir frekara tjón. Í slæmu veðurfari og kulda getur bleyta komist í undirlag vegar og þrýstingur myndast á viðgerða vegskemmd. Við slíkar aðstæður getur hola myndast að nýju.

Vegagerðin sinnir reglubundnu eftirliti með vegum og setur jafnframt upp viðvörunarmerkingar þegar þörf krefur.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og tilkynna bæði tjón og holur í vegum. Hægt er að senda inn ábendingar í gegnum vef Vegagerðarinnar með því að smella á „Getum við aðstoðað“ neðst til hægri á síðunni.