31. mars 2026
Vetrar­þjón­usta um páska

Margir hyggja á ferðalög um páskana. Þá er mikilvægt að fylgjast vel með upplýsingum á umferdin.is og kanna að auki veðurspá áður en lagt er af stað, enda allra veðra von.

Þingvallavegur

Þingvallavegur

Vegagerðin sinnir vetrarþjónustu yfir páskana líkt og aðra daga ársins, en á rauðum dögum (helgidögum) gildir þó helgartíma-þjónusta.

Á sumum leiðum milli landshluta, sem að jafnaði eru ekki þjónustaðar um helgar (5 daga þjónusta), verður þó leitast við að tryggja að umferð komist leiðar sinnar. Það getur falið í sér breytingar á mokstursdögum eða að bætt verði við aukadegi, ef veður og umferð gefa tilefni til.

Vaktstöð Vegagerðarinnar fylgist vel með veðri og færð allan sólarhringinn.

Umferðarþjónustan (sími 1777) er opin alla daga frá kl. 06:30 til 22:00.

Neyðarsími á vaktstöð er gefinn upp í aðalnúmeri Vegagerðarinnar 522-1000 eftir að skiptiborði er lokað.