Veruleg hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjó fram
Vitinn á Gjögurtá, nyrst við austanverðan Eyjafjörð, stendur nú tæpt þar sem hrunið hefur úr undirstöðum hans. Þetta hefur valdið því að vitinn hallar verulega og töluverð hætta er á að hann falli fram af klettanösinni þar sem hann stendur, í sjóinn.
Vitinn á Gjögurtá stendur tæpt.
Vitabyggingin gegnir enn hlutverki dagmerkis fyrir sjófarendur og ljós vitans skal lýsa frá 1. ágúst til 15. maí næsta árs. Engin hætta er talin vera til staðar fyrir sjófarendur að svo stöddu, að öðru leyti en því að hætta getur skapast ef vitinn fellur í sjó. Vegagerðin mun á næstunni gefa út Tilkynningu til sjófarenda (Tts). Í tilkynningunni verða sjófarendur upplýstir um að vitinn sé ótraustur og vinnur Vegagerðin nú að því að meta næstu skref til að tryggja öryggi siglinga á hafsvæðinu.
Ástand vitans kom í ljós í árlegri þjónustuferð Vegagerðarinnar þar sem siglt er hringinn í kringum landið og viðhaldi sinnt á þeim landsvitum sem aðeins er hægt að komast að frá sjó. Stuttu áður en vitinn var þjónustaður, þann 3. júní síðastliðinn, höfðu sjófarendur á svæðinu haft samband við Vaktstöð siglinga og greint frá því að vitinn hallaði óvenju mikið. Vaktstöðin kom þeim upplýsingum til Vegagerðarinnar en þá var þegar áætlað að skoða vitann.
Vegagerðin hefur undanfarin ár fylgst náið með ástandinu á staðnum þar sem jarðvegur hefur verið á hreyfingu. Jarðskjálftavirkni er vel þekkt á þessum slóðum og jarðskorpuhreyfingar hafa verið tíðar undanfarin ár og er það líkleg skýring á því að hrunið hefur bæði úr undirstöðum vitans og úr hlíðinni þar sem hann stendur. Auk þess hafa verið nokkur skriðuföll á þessum slóðum undanfarin ár og gæti ágangur sjávar einnig haft áhrif.
Fyrsti viti á Gjögurtá var reistur árið 1965, en hann eyðilagðist í gassprengingu 2. ágúst 1969 Núverandi viti var reistur árið 1970 í framhaldinu. Hann stendur í 28 metra hæð á klettanös undir Gjögurfjalli, ysta fjalli Flateyjarskaga. Ljósahús hans er 3,2 metra hátt, úr trefjaplasti, og stendur á steyptum sívöllum grunni. Ljóshúsið er með lóðréttum rúðum, keilulaga þaki og stórri lofttúðu efst, þar sem ljós vitans var áður knúið með gasi. Í dag er hann útbúinn rafgeymum sem hlaðnir eru með sólarorku sem knýja ljósið.
Myndir og myndband: Atli Örn Sævarsson
Vitinn á Gjögurtá.
Vegagerðin hefur fylgst með ástandinu á staðnum þar sem jarðvegur hefur verið á hreyfingu.
Molnað hefur undan vitanum.
Vitinn hallar verulega, eins og hér sést.