14. október 2026
Vegir á óvissu­stigi og líkur á lokun­um

Margir vegir eru á óvissustigi vegna veðursins sem nú gengur yfir landið. Búast má við mikilli snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og lokunum vega. Ekkert ferðaveður verður á Vestfjörðum eftir hádegið og líklegt að vegir þar lokist þegar líður á daginn. Veðurstofan hefur gefið út skriðuviðvörun á Austfjörðum.

Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður á Umferðin.is. Þar eru upplýsingar á íslensku, ensku og pólsku. Þá er ráðlagt að fylgjast með ölduhæð og sjávarstöðu á Sjólag.is.

Á umferðin.is eru upplýsingar á íslensku, ensku og pólsku.

Á umferðin.is eru upplýsingar á íslensku, ensku og pólsku.

Á Vesturlandi eru Holtavörðuheiði, Brattabrekka, Svínadalur og Vatnaleið á óvissustigi og gætu lokast með skömmum fyrirvara. Fróðárheiði verður líklega lokað þegar líður á daginn en þar er spáð versnandi veðri.

Á Vestfjarðakjálkanum, suður í Dali og á Snæfellsnesi, er spáð NA-átt, allt að ofsaveðri, frá því um hádegi og þar til seint í kvöld. Mikil snjókoma og hríðarveður verða á fjallvegum.

Vegurinn um sunnanvert Snæfellsnes, frá Útnesvegi að Heydalsvegi, er lokaður vegna veðurs.

Á Vestfjörðum verður ekkert ferðaveður eftir hádegi en spáð er stífum vindi, snjókomu og hríðarveðri. Því má gera ráð fyrir lokunum á Steingrímsheiði, í Djúpinu og á Þröskuldum strax upp úr hádegi. Það sama á við um Gemlufallsheiði, Dynjandisheiði, Mikladal, Hálfdán, Kleifarheiði, Klettsháls og Barðaströnd.

Á Norðvesturlandi er búið að loka Siglufjarðarvegi vegna óveðurs og hættu á grjóthruni. Á Þverárfjalli og Vatnsskarði fer veður kólnandi þegar líður á daginn og þá gæti orðið ófært.

Á Norðausturlandi er Öxnadalsheiði á óvissustigi og gæti lokast með skömmum fyrirvara. Snjóþekja, hálka og krapi er á heiðinni.

Á Suðausturlandi er búið að opna veginn milli Víkur og Markarfljóts, sem var lokaður í morgun.