Vegagerðin semur við COWI Ísland um for- og verkhönnun Fljótaganga
Vegagerðin og COWI Ísland undirrituðu í gær, miðvikudaginn 28. janúar, samning um for- og verkhönnun Fljótaganga, vegagerðar á Siglufjarðarvegi milli Stafár í Fljótum og tengingu við núverandi Siglufjarðarveg í botni Siglufjarðar. For- og verkhönnun skal að fullu lokið í nóvember 2026.

Fljótagöng undirbúningur for-og-verkhönnunar
Verkið felur m.a. í sér for- og verkhönnun jarðganga, vega, tveggja brúa, hringtorgs, áningarstaðar og undirganga fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur. Jafnframt mun COWI annast gerð verklýsinga fyrir útboð verkframkvæmda og vinna skýrslu fyrir mat á umhverfisáhrifum. Aðlögun núverandi tenginga og heimreiða að nýjum vegi er einnig hluti af verkefninu.
Í kílómetrum talið er um að ræða 5,3 km löng jarðgöng og samtals um 19 km vegagerð utan ganga.
Fljótagöng eiga að liggja milli Nautadals í Fljótum og Hólsdals. Með framkvæmdinni styttist leiðin milli Fljóta og Ólafsfjarðar um u.þ.b. 14 km og leiðin milli Fljóta og Siglufjarðar um 10 km. Jarðgöngin og vegurinn koma í stað Strákaganga og vegar um Almenninga.
Árið 2019 var unnin frumkönnun á jarðgangakostum. Jarðgrunnsrannsóknir við munnasvæði í fóru fram árin 2024 og 2025. Fleiri rannsóknir voru gerðar á árinu 2025.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum.
Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og bárust tilboð frá þremur ráðgjafafyrirtækjum: Efla hf., COWI Íslandi og Norconsult ehf.
Að loknu mati á hæfni og verðtilboðum var COWI valið til verksins. Áætlaður kostnaður Vegagerðarinnar var 272.000.000 kr. og var tilboð COWI það eina undir kostnaðaráætlun, eða 215.615.000 kr.

Yfirlitsmynd verkefnis í heild á frumdragastigi

Fljótagöng undirbúningur for-og-verkhönnunar