16. október 2026
Vega­gerð­in hlýtur viður­kenn­ingu Jafn­vægis­vogar­innar 2026

Vegagerðin er meðal 163 fyrirtækja, sveitarfélaga og opinberra stofnana sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2026 fyrir að hafa náð markmiðum verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í efsta lagi stjórnunar. Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 14. október.

Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 14. október.

Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 14. október.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í stjórnunarstöðum. Viðurkenningar hafa verið veittar árlega frá árinu 2019 til þeirra þátttakenda sem náð hafa markmiðum verkefnisins.

Jafnari kynjaskipting meðal stjórnenda Vegagerðarinnar

Góð þróun hefur verið í átt að jafnari kynjaskiptingu hjá Vegagerðinni, ekki síst í efsta lagi stjórnenda. Konur eru nú um 34% allra stjórnenda stofnunarinnar og karlar 66%.

Þegar litið er til framkvæmdastjórnar Vegagerðarinnar, sem skipuð er forstjóra, yfirstjórn og svæðisstjórum, er kynjahlutfallið enn jafnara. Þar eru konur 44% og karlar 56%.

Þessi þróun endurspeglar mikilvægi þess að vinna markvisst að jafnrétti og stuðla að jöfnum tækifærum innan stofnunarinnar.

Jafnréttismenning og hlutverk stjórnenda

Viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands miðvikudaginn 14. október. Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs, setti hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir árangur í jafnréttismálum. Hún lagði áherslu á að slíkur árangur væri engin tilviljun heldur afrakstur meðvitaðra ákvarðana og markvissrar vinnu.

Björn Skúlason, maki forseta Íslands, flutti hátíðarávarp þar sem hann ræddi meðal annars reynslu sína af því að taka að sér hlutverk sem áður hafði eingöngu verið gegnt af konum.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, flutti erindi undir yfirskriftinni „Uppbygging jafnréttismenningar og hlutverk leiðtoga“. Að því loknu tók hann þátt í pallborðsumræðum ásamt Erlu Ósk og Ágústu Björgu Bjarnadóttur, mannauðsstjóra Sjóvár, þar sem rætt var um arftakaáætlanir, jafnréttismenningu og tækifæri til starfsþróunar.

Tré gróðursett í Jafnréttislundi

Daginn eftir athöfnina bauðst viðurkenningarhöfum að gróðursetja tré í Jafnréttislundi FKA í Heiðmörk.

Þetta er fallegur siður sem endurspeglar vel markmið Jafnvægisvogarinnar. Rétt eins og tré þurfa tíma og umhirðu til að vaxa þarf að hlúa að jafnrétti og vinna markvisst að því til lengri tíma.

Viktor Freyr Hjörleifsson á mannauðsdeild Vegagerðarinnar og Sigríður Inga Sigurðardóttir af samskiptadeild gróðursettu tré í Jafnréttislundi FKA.

Viktor Freyr Hjörleifsson á mannauðsdeild Vegagerðarinnar og Sigríður Inga Sigurðardóttir af samskiptadeild gróðursettu tré í Jafnréttislundi FKA.