Vegagerðin hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025
Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í vikunni sína árlegu
viðurkenningarathöfn en athöfnin var fyrst haldin árið 2019. Í ár var fjöldi viðurkenningarhafa alls 128 en það eru þeir þátttakendur sem náð hafa markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn / efsta lagi stjórnunar.
Hópurinn sem hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2025.
Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar opnaði hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir eftirtektarverðan árangur í jafnréttismálum. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo, flutti fræðandi erindi undir heitinu „Er þetta ekki komið?“ og dómsmálaráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, flutti áhugavert og hvetjandi ávarp.
Að hreyfiaflsverkefninu standa, auk FKA, dómsmálaráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, Pipar\TBWA,
Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá
Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til níutíu fyrirtækja, tuttugu og tveggja opinberra aðila og sextán sveitarfélaga úr hópi þeirra 253 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu.
Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði.
Vegagerðin var ein þeirra stofnana sem hlaut viðukenningu Jafnvægisvogarinnar. Fastráðnir starfsmenn eru 348 en hlutfall kvenna í starfsmannahópnum er 23% en fer vaxandi. Konur eru hins vegar 37% stjórnenda og í yfirstjórn Vegagerðarinnar er hlutfall kvenna 50%.
Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fylgir tré að gjöf til gróðursetningar í Jafnréttislundi FKA, sem viðurkenningarhafar gróðursetja sjálfir í lundinum í dag, föstudaginn 10. október. Með því geta þátttakendur lagt sitt af mörkum til að draga úr kolefnisfótspori og jafnframt sýnt stuðning við jafnréttismál með táknrænum hætti.
Við val á trjám í lundinn er horft til þess að velja margar ólíkar tegundir af trjám, sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin stuðlar að. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.
Allar helstu upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu verkefnisins.