Varðskipið Þór kom til Flateyjar í morgun með vatn til að bæta vatnsbirgðir í eyjunni. Aðgerðin gekk vel og um 30 til 40 tonnum af vatni var dælt inn á vatnskerfi eyjarinnar. Ferðin var farin að beiðni Vegagerðarinnar.

Varðskipið Þór flutti vatn til Flateyjar. Mynd: Tryggvi Gunnarsson
Vegagerðin kannaði jafnframt hvort þörf væri á að flytja sorp eða olíu til eða frá eyjunni, en svo reyndist ekki vera. Einnig var haft samband við Orkubú Vestfjarða til að kanna hvort fyrir lægju flutningar á þeirra vegum, en ekki var þörf á slíkum flutningum að þessu sinni.
Viðgerðir á mótor Herjólfs IV eru á áætlun. Gert er ráð fyrir að mótorinn verði sendur með skipi frá Hollandi 13. júlí. Hann verður settur í Herjólf þegar hann berst til landsins. Ferjan Baldur mun snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið.

Varðskipið Þór við bryggju í Flatey. Mynd: Tryggvi Gunnarsson

Varðskipið Þór við bryggju í Flatey. Mynd: Tryggvi Gunnarsson